Fréttir á Forsíðu
Matseðill febrúarmánaðar
	<description>Matseðill fyrir febrúar er nú aðgengilegur hér á heimasíðunni.</description>
Slæm veðurspá
	<description>Ef veðurspá gengur eftir í nótt og í fyrramálið má búast við vonskuveðri og slæmri færð í fyrramálið. Því má búast við að einhver, jafnvel veruleg, röskun verði á skólastarfi. Því er áréttað að það er á valdi forráðamanna að ákveða hvort börn eru send í skólann, en skólahaldi er aldrei aflýst. Eins má reikna með að mikið álag verði á símakerfi og því er bent á að senda má tilkynningar um forföll í tölvupósti, hvort heldur sem er á skólastjóra, kristgis@grunnborg.is eða ritara, sigga@grunnborg.is . En vonandi verður minna úr veðri en látið er í veðri vaka.</description>
Frá Ljósmyndastofunni Mynd
	<description>Minnum á myndatöku hjá Grunnskólanum í BorgarnesiMyndataka fer fram miðvikudaginn 1. febrúarAllir  myndaðir í 1.- 4.-7. og 10. bekkVið myndum hópmyndir af viðkomandi bekkjum, einstaklingsmyndir af öllum í viðkomandi bekkjum.  Þegar þessu er lokið fara viðkomandi myndir inn á vef ljósmyndastofunnar, með aðgangslykli skólans, þar getur fólk skoðað, valið og pantað. Hverjum og einum er síðan frjálst að kaupa eftir hans / hennar hentugleik. Engin greiðsla fer fram áður og engin innheimta á sér stað í skólanum, eingöngu um leið og pantað er á vefnum.  Frjálst val.Hópmynd hjá okkur kostar það sama og undanfarin ár, kr: 2500.- hún er í stærðinni 20x25cm með nöfnum allra sem á myndinni eru.Algengasta myndapöntun er sú sama og var í fyrra og kostar það sama núna kr: 2000.- í henni er innifalið eftirfarandi 1. mynd 13x18cm, 1.mynd 9x12cm og síðan fjórar passamyndir.Vinsamlegast athugið að vefurinn er ljósmyndavefur og öllum sem hafa aðgangsorð skólans opinn.Eftir myndatökuna tekur við vinnsla á myndunum, hún getur tekið tvær vikur, lykill vegna skólans verður sendur öllum þegar myndirnar eru tilbúnar á vefnum.Með kveðjuFh. Mynd ljósmyndastofuBjarni Jónsson</description>
Söngkeppni
	<description>Á miðvikudaginn 11. janúar fór fram söngkeppni nemenda í 5. – 7. bekk í Grunnskólanum í Borgarnesi. Keppnin fór fram í Félagsmiðstöðinni Óðal. Það var Snæþór Bjarki Jónson í 6. bekk sem sigraði. Í öðru sæti voru þær Ingibjörg Rósa Jónsdóttir og Hrafnhildur Tinna Ólafsdóttir úr 5. bekk og í þriðja sæti voru þær Arna Jara Jökulsdóttir, Sóley Ásta Orradóttir og Margrét Steinunn Ingadóttir einnig úr 5. bekk.  Á vef nemendafélagsins er hægt að sjá myndir og myndbönd frá keppninni</description>
Námsráðgjöf
	<description>Elín Kristjánsdóttir, náms- og starfsráðgjafi hefur hafið störf við skólann og er hún með viðveru á mánudögum. Nemendur geta leitað til hennar með öll þau málefni sem liggja þeim á hjarta. Námsráðgjöfin er þjónusta fyrir nemendur skólans og fer fram í trúnaði. Einnig geta foreldrar leitað til Elínar. Hægt er að panta viðtalstíma hjá Sigríði Helgu skólaritara, umsjónarkennurum eða í tölvupósti (elin@menntaborg.is)</description>
7. bekkur í skólabúðum
	<description>Nemendur 7. bekka skólans verða í Skólabúðunum á Reykjum við leik og störf þessa viku. Eru þeir þar með jafnöldrum úr samstarfsskólum auk Norðlingaskóla.</description>
Söngkeppni Óðals
	<description>Í kvöld, fimmtudag, fer fram söngkeppni 8.-10. bekkja Í Óðali. Hefst keppnin kl. 20. Sigurvegari þessarar keppni mun taka þátt í söngkeppni félagsmiðstöðva á Vesturlandi inna tíðar. Allnokkrir hafa skráð sig til keppni og er ekki að efa að allir keppendur munu leggja sig fram. Allir velkomnir að koma og fylgjast með.</description>
Heimsókn töframanns
	<description>Í gær fengu nemendur 1.-4. bekkjar góða heimsókn en þá kom Kristinn Gauti Gunnarsson, ungur og efnilegur töframaður af Akranesi, í heimsókn. Sýndi hann nemendum listir sýnar, þeim til mikillar  ánægju. Þótti þeim hér mikil undur á ferð. Eru honum færðar þakkir fyrir komuna. Þess má geta að Kristinn Gauti er dóttursonur Mummu Lóu kennara hér við skólann.</description>
Matseðill fyrir janúar
	<description>Það má finna matseðil fyrir janúar með því að smella hér.</description>
Gjaldskrárbreytingar
	<description>Sveitarstjórn hefur samþykkt og gefið út nýja gjaldskrá fyrir skólamötuneyti og Tómstundaskóla/skólaskjól. 
Morgunverður kr. 100.-
Hádegisverður kr. 374.- 
Síðdegishressing kr. 100.- 
Dvalargjald pr. klst. kr. 210.- 
Ekki er greitt dvalargjald meðan beðið er eftir skólabíl í dreifbýli.</description>
Myndbönd
	<description>Myndbönd frá Litlu jólunum eru komin inn á vef skólans.  Hægt er að nálgast þessi myndbönd með því að velja myndir og myndbönd.  Einnig eru myndbönd frá Árshátíð skólans 2009 og Norræna skólahlaupinu 2011.</description>
Jólakveðja
	<description>Starfsfólk skólans óskar öllum íbúum Borgarbyggðar gleðilegra jóla og farsæls og árangursríks komandi árs. Þökkum gott samstarf á árinu sem er að líða. 
Skólastjóri</description>
Litlu jólin
	<description>Litlu jólin voru haldin með hefðbundnu sniði hér í skólanum í morgun. Nemendur mættu klukkan 9 og héldu þá hver til sinnar stofu. Þar var ýmislegt gert til skemmtunar en um hálf ellefu leytið var síðan farið í íþróttahúsið þar sem nemendur 3. og 4. bekkjar sýndu helgileik. Að því loknu sýndu nemendur 6. bekkjar nokkur létt atriði. Loks fluttu 10. bekkingar Grýlukvæði Jóhannesar úr Kötlum á nýstárlegan hátt og sýndu dans. Loks var gengið í kringum jólatréð og jólasveinar kíktu í heimsókn.
Nú er komið jólafrí en kennsla hefst að nýju 4. janúar næstkomandi, samkvæmt stundaskrá.</description>
Á aðventunni
	<description>Í desember skreyta nemendur sitt nánasta umhverfi, stofur og ganga. Jónína Laufey fór um skólann vopnuð myndavélinni sinni. Eins og myndirnar bera með sér er greinilegt að jólin eru á næstu grösum.</description>
Kortagerð með vinabekk
	<description>5. bekkur heimsótti vinabekk sinn, 2. bekk,  á dögunum og saman unnu nemendur að kortagerð - var gaman að sjá hversu allir vönduðu sig og voru einbeittir í vinnunni.</description>
Samsöngur á aðventu
	<description>Eitt af því sem gert er á aðventunni í yngri deild er að koma saman og syngja. Myndirnar hérna eru frá einni slíkri stund hjá 4. - 6. bekk.</description>
Upplestur
	<description>Í vikunni fyrir jólafrí er oft brugðið út af hefðbundinni dagskrá með margskonar hætti og viðfangsefnum. Ungur rithöfundur Harpa Dís Hákonardóttir heimsótti skólann í vikunni og las fyrir nemendur 4 .- 7. bekkja upp úr bók sinni, Fangarnir í trénu. Myndirnar eru úr 5. og 6. bekk.</description>
Jólasmiðjur á miðstigi
	<description>Það var góð stemming á miðstiginu í morgun þegar nemendur í  4.-6. bekk voru í jólasmiðjum. Nemendurnir gátu valið um að gera jólatré, jólakörfur, jólahús, jólasveina og stjörnu-origami. Á einni stöðinni var boðið upp á söng.</description>
Setustofa
	<description>Í vikunni kom stærðarinnar sófi sem komið var fyrir í setustofu í eldri deild sem til skamms tíma hefur verið ónotuð. Bætir þetta úr brýnni þörf nemenda fyrir aðstöðu í kennsluhléum. Ekki er annað að sjá en allir séu verulega ánægðir með þetta og er ætlunin að halda áfram á þessari braut og koma húsgögnum þessarar gerðar fyrir víðar í setrýmum eldri deildar. Ef myndirnar birtast eru teknar í þessari nýtilkomnu aðstöðu.</description>
Jólaútvarp Óðals
	<description>Næsta mánudag, 12. des. hefst hið árlega FM Óðal 101,3. Verður sent út alla vikuna fram á föstudagskvöld. En allt um þetta í dagskránni sem hægt er að nálgast hér af síðunni.</description>