Lög Foreldrafélags Grunnskólans í Borgarnesi
1.Félagið heitir Foreldrafélag Grunnskólans í Borgarnesi
2. Félagar eru:
a) forráðamenn nemenda skólans
b) starfsfólkskólans
3. Tilgangur félagsins er:
a) að koma á lifandi sambandi á milli skólans og heimila nemenda,
b) að stuðla að framgangi ýmissa mála í þágu skólans.
4. Tilgangi sínum hyggst félagið ná m.a. með því :
a) að halda fundi, þar sem fjallað er um ýmis uppeldisfræðileg efni,
b) að veita aðstoð í starfi skólans í þágu nemenda,
c) að styðja menningarviðleitni innan skólans.
5. Foreldrar barna í hverjum árgangi mynda deild í foreldrafélagi, sem sinnir foreldrastarfi í viðkomandi árgangi.
Í upphafi skólaárs ár hvert skal hver deild kjósa tvenna foreldra fyrir hvorn bekk sem foreldrafulltrúa, sem fráfarandi foreldrafulltrúar og umsjónarkennarar skulu gera tillögu um.
6. Fimm manns skipa stjórn félagsins. Fjórir þeirra,formaður,
varaformaður,ritari og einn meðstjórnandi eru kosnir á aðalfundi úr hópi
foreldra til tveggja ára,en einn stjórnarmaður kemur úr röðum starfsfólk skólans.
Varastjórn skal skipuð tveimur mönnum sem skulu kosnir til eins árs á aðalfundi .
Stjórn er heimilit að tilnefna einn fulltrúa til setu á kennarafundum.
7.Aðalfund félagsins skal halda að hverju vori fyrir apríllok, og skal hann boðaður með viku fyrirvara. Dagskrá fundarins skal vera:
a) skýrsla formanns um starfsemi félagsins á liðnu ári,
b) lagabreytingar,
c) kosning tveggja stjórnarmanna til tveggja ára og tveggja í varastjórn.
d) Kosning foreldrafulltrúa, aðal-og varamanna, til setu á fundum skólanefndar.
8. Lagabreytingar er aðeins hægt að gera á aðalfundi foreldrafélagsins og þarf til þess 2/3 hluta greiddra atkvæða.
Samþykkt á aðalfundi félagsins 06.11. 2006.