Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Grunnskólinn í Borgarnesi
   Gunnlaugsgötu 13
   310 Borgarnes
   skoli@grunnborg.is
  Skrifstofa: 437 1183
  437 1229
  Fax: 437 2283
  Tómstundaskóli: 437 2035
Atburðadagatal
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
maí 2012
Næsti mánuður
Menntagátt - fréttir
Menntagátt - á döfinni

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Upplýsingar um foreldraröltið

 

Í þessu skjali eru helstu upplýsingar sem foreldrar þurfa að vita þegar að þeir taka þátt í röltinu s.s hvar á að hittast og hvenær og hvort skuli hafa afskipti af  unglingunum og hvert er markmiðið. Stefnt er að ca. 3 foreldrar verði á ferðinni í hvert skipti.

 

Markmið

Markmið röltsins er fyrst og fremst að stuðla að því að útivistarreglur barna og unglinga séu virtar.Einnig koma í veg fyrir /minnka neyslu vímuefna hjá unglingum undir lögaldri, sem og fyrirbyggja skemmdarverk og ofbeldi.

 

Hvernig fer foreldraröltið fram

Leitað er eftir þátttöku foreldra barna í 1.-10. bekk. Þátttaka foreldra í röltinu er algjörlega frjáls.

Ef foreldrar barna í öðrum bekkjum hafa áhuga á röltinu þá er bara að hafa samband.

Það verður reynt að hringja í foreldra til að minna á þá daga sem að þeir skrifuðu sig á röltið en það getur komið upp að það verði ekki hægt, því viljum við biðja foreldra að  reyna að muna eftir því svo að ekki detti niður röltið .

 

Röltið hefst kl. 22:00

 Foreldraröltið hefur aðsetur í  Skátahúsinu við Skallagrímsgarð en lykill að húsinu er  að finna í tösku  Foreldrafélagsins sem geymd er á Essostöðinni og þarf einhver að sjá um að sækja töskuna og koma henni aftur þangað daginn eftir. Möguleiki er á að hella sér uppá kaffi í húsinu og eiga þar spjall saman um daginn og veginn og hvað börnin okkar eru að gera.   Munið að vaska upp eftir ykkur og ganga vel um.

 Rölt verður alla föstudaga, einstaka laugardaga og kvöldin fyrir frídaga þegar þeir bera uppá virka daga s.s. sumardaginn fyrsta en þá er rölt  á miðvikudagskvöldinu.

 Foreldrar hittast í  Skátahúsinu og ganga síðan í hóp um bæinn með reglulegu millibil meðan þörf  krefur. Mesta þörfin er að fara í  Skallagrímsgarðinn, niður að hóteli , útí Brákarey, Borgarklett, hjá Dússabar upp eftir Borgarbrautinni ,kringum Hyrnuna og KB, mastrið á Þórólfsgötu og klettana fyrir ofan Ánahlíðina .

Þegar foreldrar fara heim að loknu rölti er gott að taka smá rúnt áður en farið er heim. Foreldrar eiga ekki að hafa bein afskipti af einstaklingum, nema undir þeim kringumstæðum að borgaraleg skylda krefjist þess s.s ef unglingur er ósjálfbjarga eða hætta á ferðum.

 Ef afskipta er þörf, höfum við samband við lögreglu og biðjum hana að koma á vettvang.

 

Hafa skal samband við lögreglu við eftirfarandi aðstæður:

·        Ef unglingur er úti eftir lögbundinn útivistartíma.

·        Ef unglingur undir lögaldri er undir áhrifum vímuefna.

·        Ef skemmdarverk eru framin.

·        Ef ofbeldi er í gangi.

 Það er grundvallarregla hjá foreldraröltinu að ræða ekki við aðra það sem að fyrir augu og eyru bera á vaktinni.

 Færð er stutt dagbók um hvert rölt, sem að foreldrar skrifa síðan undir.

Í dagbókina eru aldrei skráð nöfn barna eða unglinga. Dagbókin er í töskunni á N1.

 

Foreldrar!!!

Höfum það hugfast að koma fram við unglinga sem og aðra af virðingu.

Framtíð barnanna okkar er í okkar höndum og stöndum saman um að draga úr og koma í veg fyrir vímuefnaneyslu þeirra. 

 

Stjórn Foreldrafélags í Borgarnesi

Fréttir úr 5. bekk - 10.5.201
Fréttir úr 5. bekk - 10.5.201
Fréttir úr 5. bekk - 10.5.201
Fréttir úr 5. bekk - 10.5.201
Fréttir úr 1. bekk - 18.4.201