Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Grunnskólinn í Borgarnesi
   Gunnlaugsgötu 13
   310 Borgarnes
   skoli@grunnborg.is
  Skrifstofa: 437 1183
  437 1229
  Fax: 437 2283
  Tómstundaskóli: 437 2035
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Fyrri mánuður
febrúar 2012
Næsti mánuður
Menntagátt - fréttir
Menntagátt - á döfinni

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

12. apríl 2010

Glæsileg frammistaða í stærðfræðikeppni

Síðastliðinn laugardag voru veittar viðurkenningar og verðlaun fyrir góðan árangur í stærðfræðikeppni Fjölbrautaskóla Vesturlands. Þetta er í tólfta sinn sem þessi keppni er haldin  fyrir nemendur 8., 9. og 10 bekkja grunnskólanna á Vesturlandi. Alls tóku 93 nemendur þátt í keppninni að þessu sinni.  Keppnin fer einnig fram í mörgum öðrum fjölbrautaskólum landsins. 

Úrslit keppninnar eru okkur sérstakt gleðiefni að þessu sinni því nemendur okkar náðu frábærum árangri. Í 8. bekk deildu  þau Filippia Svava Gautadóttir og Valur Örn Vífilsson, þriðja sætinu, í 9. bekk varð Þorkell Már Einarsson í fyrsta sæti og í 10. bekk varð A. Gabriel Guðfinnsson, í fyrsta sæti og Telma Dögg Pálsdóttir í öðru sæti.

Að þessu sinni tóku 17 nemendur úr Grunnskólanum í Borgarnesi þátt í keppninni. Átta nemendur lentu í efstu 10 sætum sins árgangs. Þetta voru A. Gabriel Guðfinnsson,
Telma Dögg Pálsdóttir, Þorkell Már Einarsson,  Guðný Hulda Valdimarsdóttir, Hulda Rún Finnbogadóttir, Lára Helgadóttir, Filippia Svava Gautadóttir og Valur Örn Vífilsson. Við óskum þeim og foreldrum  þeirra hjartanlega til hamingju með árangurinn.