Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Grunnskólinn í Borgarnesi
   Gunnlaugsgötu 13
   310 Borgarnes
   skoli@grunnborg.is
  Skrifstofa: 437 1183
  437 1229
  Fax: 437 2283
  Tómstundaskóli: 437 2035
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Fyrri mánuður
febrúar 2012
Næsti mánuður
Menntagátt - fréttir
Menntagátt - á döfinni

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

20. mars 2007

Heimili og skóli óskar eftir tilnefningum til foreldraverðlauna

 Foreldraverðlaun Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra verða veitt 15.maí 2007 í 12. sinn. Að auki verða veitt  hvatningarverðlaun til einstaklinga og skóla ef tilefni þykir til.

 

 Leitað er eftir tilnefningum um einstaklinga, sveitarfélög eða skóla sem hafa stuðlað að:

-   árangursríkum leiðum við að efla samstarf foreldra og kennara

-   jákvæðum hefðum í samstarfi heimila og skóla

-   því að brúa bilið milli foreldra og nemenda

 

 Í ár verður sérstaklega horft til eftirfarandi viðfangsefna:

            - Markvisst, öflugt og skipulagt starf foreldraráðs eða foreldrafélags

            - Þróunarverkefna sem taka til samstarfs heimila og skóla

            - Nýbúafræðslu þar sem markvisst er unnið með foreldrasamstarf

            - Sveitarfélög sem styðja markvisst við foreldrasamtök og foreldra í sínu sveitarfélagi

Sérstök dómnefnd  sem í sitja fulltrúar frá Skólastjórafélagi Íslands, KHÍ, svæðasamtökum foreldra, fræðsluskrifstofum og fulltrúum frá Heimili og skóla mun velja verkefni til verðlauna sem uppfylla eitt eða fleiri af ofangreindum viðmiðum og sem eru í samræmi við þau skilyrði að: Verkefnið hafi skýran tilgang; Verkefnið hafi fest rætur og sýni fram á varanleika; Foreldrar komi með einhverjum hætti að verkefninu

Tilnefningaraðilar eru foreldrafélög, foreldraráð, kennarar, skólastarfsmenn, skólastjórar, skólanefndir, nemendur, sveitarstjórnarmenn eða einstaklingar. Senda skal inn tilnefningar á rafrænan hátt með því að fylla út eyðublað á www.heimiliogskoli.is . Síðasti skiladagur tilnefninga er 4. apríl 2007.

Í fyrra hlaut Stóra  upplestrarkeppnin- Ingibjörg Einarsdóttir og Baldur Sigurðsson fyrir frumkvöðlastarf og óeigingjarna vinnu í þágu keppninnar.  Baldur Sigurðsson, dósent í KHÍ og Ingibjörg Einarsdóttir, skrifstofustjóri Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar eru upphafsmenn keppninnar og hafa haft veg og vanda að undirbúningi og utanumhaldi með keppninni frá upphafi.  Eljusemi þeirra og trú á verkefninu á sinn þátt í hversu vel keppninnni hefur verið vel tekið og hversu fljótt hún hefur vaxið.

 

Nánari upplýsingar veitir:

 

Sjöfn Þórðardóttir verkefnastjóri

Netfang:sjofn@heimiliogskoli.is

S. 562 7472 Gsm. 897-2098