Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Grunnskólinn í Borgarnesi
   Gunnlaugsgötu 13
   310 Borgarnes
   skoli@grunnborg.is
  Skrifstofa: 437 1183
  437 1229
  Fax: 437 2283
  Tómstundaskóli: 437 2035
Atburðadagatal
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
maí 2012
Næsti mánuður
Menntagátt - fréttir
Menntagátt - á döfinni

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

22. maí 2008

Á söguslóðum Snorra

Þriðjudaginn 20. maí fóru nemendur og kennarar í 6. bekk í ferð. Fyrst var komið við í Reykholti.  Nemendur hafa verið að læra um Snorra Sturluson í vetur og því var ákveðið að fara í Reykholt og skoða söguslóðir Snorra.  Sr. Geir Waage tók á móti hópnum við Snorrastofu.  Farið var inn í kirkjuna og sr. Geir fræddi nemendur um Snorra og hvernig lífið var í Evrópu og Íslandi á tímum hans.  Nemendur hlustuðu á Geir og spurðu hann spurninga.  Eftir góða og fróðlega stund í kirkjunni var gengið út í góða veðrið.  Gengið var um svæðið og fengu nemendur fræðslu um það sem tengdist Snorra á hverjum stað. 

Næst var haldið í Húsafell og nestið borðað.  Þar var uppblásinn belgur þar sem nemendur gátu hoppað á.  Hann vakti mikla lukku hjá nemendum og kennurum sem hömuðust á belgnum í góða stund.   Sumir fóru og könnuðu nágrennið og fundu læk og busluðu smá enda veðrið frábært.   Á bakaleiðinni var komið við í hjá Hraunfossum og Barnafossi.