Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Grunnskólinn í Borgarnesi
   Gunnlaugsgötu 13
   310 Borgarnes
   skoli@grunnborg.is
  Skrifstofa: 437 1183
  437 1229
  Fax: 437 2283
  Tómstundaskóli: 437 2035
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Fyrri mánuður
febrúar 2012
Næsti mánuður
Menntagátt - fréttir
Menntagátt - á döfinni

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

23. september 2008

Undirbúningur fyrir afmælishátíð

  Í haust eru 100 ár liðin frá því að skólastarf hófst í Borgarnesi og þeirra tímamóta ætlum við að minnast með veglegri afmælishátíð. Vikuna 29. sept. til 3. okt. verður þemavika í skólanum þar sem reynt verður að fanga tíðaranda síðustu 100 ára með áherslu á Borgarnes en jafnframt er helstu atburðum á landsvísu (og jafnvel á heimsvísu) gefinn gaumur. Þessa viku verða stundatöflur stokkaðar upp, hefðbundin stundatafla verður lögð til hliðar og allur dagurinn fer í vinnu við afmælisundirbúninginn. Þó mæta nemendur í íþróttir og sund og list.- og verkgreinar í 7. - 10. bekk. Foreldrar eru sérstaklega boðnir velkomnir í heimsókn þessa viku. Við ljúkumvinnunni með sýningum í skólanum og í Menningarsal Borgarbyggðar í Menntaskóla Borgarfjarðar, föstudaginn 3. október. Opið hús verður frá 12:30 til 18:00 þar sem afrakstur vikunnar verður sýndur og boðið verður upp á veitingar í skólanum. Tvennar sýningar verða í Menningarsal Borgarbyggðar í Menntaskóla Borgarfjarðar, kl 17:00 og 19:00.

 

  Nú leitum við til foreldra nemenda, íbúa Borgarbyggðar og fyrrverandi nemenda skólans með gögn sem geta nýst okkur. Við óskum eftir munum sem tengjast skólagöngu fólks (s.s. námsbókum, ljósmyndum, vinnubókum og öðrum námsgögnum) jafnframt munum sem tengjast daglegu lífi og gefa mynd af tíðaranda hvers tímabils (s.s. föt, leikföng, bækur, dagblöð, tónlist, ofl.).

Hver árgangur hefur sinn áratug til að vinna með, þ.e.

 

Tímabil                 Árg.             Umsjónarkennarar

1908 (-1917) – 10. bekkur - Inga Margrét Skúladóttir og Heiðrún Hafliðadóttir

1918 (-1927) – 9. bekkur - Katrín Magnúsdóttir

1928 (-1937) – 8. bekkur - Birna Hlín Guðjónsdóttir

1938 (-1947) – 7. bekkur - Guðrún Rebekka Kristjánsdóttir og Sigurður Hreiðarr Björgvinsson

1948 (-1957) – 6. bekkur - Sigurþór Hjalti Gústafssonog Helga Þorsteinsdóttir

1958 (-1967) – 5. bekkur - Björk Jóhannsdóttir og Jónína Jóhannsdóttir

1968 (-1977) – 4. bekkur - Margrét Jóhannsdóttir og Elísa Harpa Grytvik

1978 (-1987) – 3. bekkur - Sæbjörg Kristmansdóttir og Rósa Hlín Sigfúsdóttir

1988 (-1997) – 2. bekkur - Arna Einarsdóttir og Hólmfríður Ólafsdóttir

1998 (-2008) – 1. bekkur - Sólrún Tryggvadóttir og Guðmunda Ólöf Jónasdóttir

 

Þeir sem eiga muni og telja þá geta nýst okkur eru beðnir um að merkja þá vel og koma þeim til viðkomandi umsjónarkennara. Verðmætar ljósmyndir getum við skannað og skilað fljótt aftur.