Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Grunnskólinn í Borgarnesi
   Gunnlaugsgötu 13
   310 Borgarnes
   skoli@grunnborg.is
  Skrifstofa: 437 1183
  437 1229
  Fax: 437 2283
  Tómstundaskóli: 437 2035
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Fyrri mánuður
febrúar 2012
Næsti mánuður
Menntagátt - fréttir
Menntagátt - á döfinni

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

12. janúar 2009

Leikskólabörn í heimsókn í Grunnskólanum

Í um áratug hefur verið talsvert samstarf á milli Grunnskólans í Borgarnesi og leikskólans Klettaborgar og á árinu 2008 bættist leikskólinn Ugluklettur í hópinn. Hlutverk þessa samstarfs hefur verið að brúa bilið á milli leikskóla og grunnskóla með hagsmuni nemendanna að leiðarljósi. Eitt af verkefnunum er að bjóða elstu nemendum leikskólans í heimsóknir eftir ármót á því ári sem þeir hefja skólagöngu. Nemendur koma í 4-6 manna hópum ásamt leikskólakennurum og taka þátt í skólastarfinu með 1.bekk grunnskólans. Áður en þessar heimsóknir hefjast kemur allur elsti árgangurinn í heimsókn til að skoða skólahúsnæðið.  Föstudaginn 9.janúar kom hópurinn í heimsókn að þessu tilefni. Eftir að hafa farið um skólann, heimsótt skólastjórann og sungið með tónmenntakennaranum sem þau þekkja úr leikskólanum var farið í heimsókn í Tómstundaskólann.