Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Grunnskólinn í Borgarnesi
   Gunnlaugsgötu 13
   310 Borgarnes
   skoli@grunnborg.is
  Skrifstofa: 437 1183
  437 1229
  Fax: 437 2283
  Tómstundaskóli: 437 2035
Atburðadagatal
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
maí 2012
Næsti mánuður
Menntagátt - fréttir
Menntagátt - á döfinni

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

16. apríl 2009

Heimsókn frá Svíþjóð

Sunnudaginn 19. apríl mun 37 manna hópur nemenda og kennara koma í heimsókn til okkar frá Tullbroskolan (http://www.edu.falkenberg.se/tullbroskolan) í Falkenberg sem er vinabær okkar í Svíþjóð. Þau eru að endurgjalda heimsókn frá því í haust og  verða hér á landi fram til föstudagsins 24. apríl. Dagskrá er hægt að nalgast HÉR en hún er birt með fyrirvara um breytingar, s.s. vegna veðurs.

 

Heimsóknir sem þessar eru mikilvægar skólastarfinu þar sem nemendur kynnast jafnöldrum frá öðru landi, öðru tungumáli og menningarheimi. Til að svona stórt verkefni gangi upp, þarf samstillt átak allra sem að því standa, þ.e. nemenda, forráðamanna, kennara og skólastjórnenda. Nemendur voru duglegir og samviskusamir í samskiptunum og fjáröflunum, foreldrar voru reiðubúnir þegar til þeirra var leitað, kennarar sáu um allt skipulag og skólastjórnendur veittu stuðning og komu að skipulagi verkefnisins. Hiti og þungi verkefnisins hvílir á umsjónarkennurum 10. bekkinga þeim Ingu Margréti Skúladóttur, Heiðrúnu Hafliðadóttur og Gunnhildi Harðardóttur deildarstjóra og foreldrafulltrúum bekkjanna. Allir sem standa að verkefninu eiga þakkir skyldar fyrir óeigingjarnt starf.