Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Grunnskólinn í Borgarnesi
   Gunnlaugsgötu 13
   310 Borgarnes
   skoli@grunnborg.is
  Skrifstofa: 437 1183
  437 1229
  Fax: 437 2283
  Tómstundaskóli: 437 2035
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Fyrri mánuður
febrúar 2012
Næsti mánuður
Menntagátt - fréttir
Menntagátt - á döfinni

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

22. apríl 2009

Skíðaferð 8. bekkjar 16. – 17. apríl 2009

 

Eins og undanfarin ár fór 8. bekkur í skíðaferð og að þessu sinni lá leiðin til Dalvíkur.  Lagt var  af stað frá skólanum að morgni fimmtudagsins 16. apríl og ekið til Dalvíkur með viðkomu í sjoppu á leiðinni.  Þegar komið var til Dalvíkur var blíðskaparveður með sólskini og ekið var beint í skíðaskála Dalvíkinga við Böggvisstaðafjall. Farangrinum var komið fyrir inni í skála og af því loknu lá leiðin í skíðaleiguna (þeir sem ekki voru með eigin skíði) og ýmist voru þar fengin skíði eða bretti. Þegar allir voru komnir með viðeigandi búnað var skíðakennsla þar til allir gátu staðið á skíðunum, komið sér upp í lyftunni og niður brekkuna áfallalaust. Skíðað var til klukkan 17 og þá var rölt niður í byggð og farið í sund. Að því loknu var farið á Olís og allir fengu sér að borða. Eftir matinn var farið  aftur upp í skála og aftur á skíði. Skíðað var til kl.  22 og þá farið inn í skála og sprellað fram undir miðnætti.

Föstudagsmorguninn var tekinn með ró og ekki farið á kreik fyrr en um kl. 9. Þá var snæddur morgunverður (nesti að heiman) og svo farið á skíðin/brettin um kl. 10. Sólarlaust var þennan dag en mjög stillt og gott veður. Skíðað var til kl.  15:00 með nestispásum þegar það hentaði hverjum og einum og svo lagt af stað heim um kl. 15:30, stoppað á Blönduósi í sjoppu og komið heim í Borgarnes rétt fyrir kl. 20.

Ferðin gekk vel í alla staði og allir snéru heilir heim, glaðir og ánægðir.