Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Grunnskólinn í Borgarnesi
   Gunnlaugsgötu 13
   310 Borgarnes
   skoli@grunnborg.is
  Skrifstofa: 437 1183
  437 1229
  Fax: 437 2283
  Tómstundaskóli: 437 2035
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Fyrri mánuður
febrúar 2012
Næsti mánuður
Menntagátt - fréttir
Menntagátt - á döfinni

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

19. maí 2009

Gengið í íslenska vorinu

Nemendur og kennarar 7. – 9. bekkjar, Grunnskólans í Borgarnesi, brugðu undir sig betri fætinum og notuðu daginn til útivistar. Veðrið var ágætt, heiðskírt og þurrt en nokkur vindur. Nemendur höfðu valið einn af fjórum ólíkum stöðum og stóð valið á milli gönguferða á Hafnarfjall þar sem allir náðu því markmiði að skrifa í gestabókina á toppi fjallsins og létu það ekki á sig fá þó blési nokkuð og leiðin upp öll á fótinn. Aðrir fóru á Skálafell og niður Árdalsgil, nokkuð strembin ganga, brött og grýtt og reyndi nokkuð á þrautseigju og þol í fyrstu en seinni hluti leiðarinnar var auðveldari og gott að kæla þreyttar fætur í köldu vatninu í Árdalsgili. Einkunnir er fallegt og stórbrotið útivistarsvæði við túngarðinn hjá okkur. Þangað fór föngulegur hópur í gönguferð  frá Álatjörn að Háfsvatni og til baka. Hópurinn dvaldi síðan við Álatjörn þar sem sumir reyndu að veiða og enn aðrir að vaða. Þá var kveikt upp í grilli og gafst nemendum kostur á að grilla sér pylsur og fleira. Enn aðrir spreyttu sig á að  spila golf á golfvellinum á Hamri. Þar voru bæði reyndir golfarar og fólk sem var að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni. Ferðirnar voru vel heppnaðar og allir komu þreyttir en glaðir heim.

 

Myndir úr ferðunum má sjá með því að smella á hnapp merktur Myndir hér fyrir ofan.