Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Grunnskólinn í Borgarnesi
   Gunnlaugsgötu 13
   310 Borgarnes
   skoli@grunnborg.is
  Skrifstofa: 437 1183
  437 1229
  Fax: 437 2283
  Tómstundaskóli: 437 2035
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Fyrri mánuður
febrúar 2012
Næsti mánuður
Menntagátt - fréttir
Menntagátt - á döfinni

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

8. október 2009

Óvissuferð 10. bekkjar

 Daganna 16.-18.september síðastliðinn fóru nemendur 10. bekkjar í skólaferðalag sem var skipulagt sem óvissuferð og voru það foreldrar sem báru hita og þunga af öllum undirbúningi. Er skemmst frá því að segja að þessi ferð var mjög skemmmtileg og vel heppnuð í alla staði. Hér á eftir er stutt lýsing á því sem krakkarnir höfðu fyrir stafni auk nokkurra mynda úr ferðinni.

Miðvikudagur 16. september

Strax eftir samræmduprófin um hádegisleytið lögðum við af stað í óvissuferð og keyrðum norður í Skagafjörð. Keyrðum í þrjár klukkutíma þar til við komum á Sauðárkrók. Þar var hópnum skipt í tvennt - annar fór á hestbak og hinn í klettasig í Hegranesi og svo var skipt.  Þá var farið á skotsvæði  þar sem við fengum að prófa að skjóta af rifli ,haglabyssu og boga. Eftir þetta voru allir orðnir þreyttir, svangir og kaldir og því var stefnan tekin upp á Steinstaði  þar sem við komum okkur fyrir á gistihúsinu og borðuðum lasagna. Eftir kvöldmatinn fórum við í sund .

Fimmtudagur 17. september

Við vöknuðum snemma,   borðuðum morgunmat og keyrðum svo  að Hólum í Hjaltadal þar sem kirkjan var skoðuð. Síðan lögðum við að stað til Dalvíkur - þaðan lá svo leiðin til  Akureyrar þar sem við fórum á skauta, í keilu og enduðum á því að fara út að borða á Greifanum. Síðar um kvöldið þegar við vorum komin aftur heim að Steinsstöðum fórum við í útileiki og svo í sund.

Föstudagur 18. september

Vöknuðum snemma og útbjuggum okkur nesti. Fórum svo í ,, paintball “ á Vindheimamelum í Skagarfirði og þaðan í ,,river rafting” sem var í vestari Jökulsá . Fórum svo í sund í Varmahlíð og á heimleiðinni fengum við okkur að borða á Pottinum og pönnunni á Blönduósi. Vorum við svo komin heim í Borgarnes kl. 10 um kvöldið.