Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Grunnskólinn í Borgarnesi
   Gunnlaugsgötu 13
   310 Borgarnes
   skoli@grunnborg.is
  Skrifstofa: 437 1183
  437 1229
  Fax: 437 2283
  Tómstundaskóli: 437 2035
Atburðadagatal
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
maí 2012
Næsti mánuður
Menntagátt - fréttir
Menntagátt - á döfinni

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

8. október 2009

Heimsókn á Dvalarheimilið

Yngri nemendur skólans munu í vetur fara í heimsóknir á Dvalarheimilið, sjálfum sér og öðrum til skemmtunar og fróðleiks. 6. bekkur er búinn að fara og er hér að neðan að finna frásögn af þeim heimsóknum og eins nokkrar myndir.

 

Í dag, fimmtudag, fór síðari hópurinn í 6. bekk í heimsókn á Dvalarheimilið. Krakkarnir fengu fylgd um allt heimilið, kíktu inn á herbergi hjá nokkrum, komu við í eldhúsinu þar sem verið var að baka og elda mat á fullum krafti, kíktu í þvottahúsið þar sem allt er mjög skipulagt, hver og einn með sitt númer á fötunum til að þau skili sér hrein í réttar hendur. Fyrir viku síðan fylgdist hópurinn með sláturgerð og furðuðu þau sig á því hve mikið það var sem var verið að búa til. Eitt af einkennum okkar Íslendinga er að forvitnast um hverra manna hver og einn er og þurftu krakkarnir að gera grein fyrir því hver þeir væru og voru spurð í þaula. Þeir stóðu sig mjög vel og höfðu gaman að þessu.  Eftir skoðunarferð um heimilið settust krakkarnir niður með eldra fólkinu í föndrinu, spiluðu og spjölluðu saman og nokkrir gripu í að búa til sláturnælur. Þessar heimsóknir hafa í alla staði verið mjög skemmtilegar bæði fyrir unga sem aldna.