Anna María Lind kennir textílmennt. Hún kennir okkur að hekla, þæfa, sauma í kross og búa til pennaveski. Fyrstu tímana gerðum við pennaveski, við gerðum snið og saumuðum í saumavél og síðan settum við litlar myndir á til að lífga upp á það. Því næst fórum við að hekla. Sumir gerðu húfu, griflur aðrir kodda, vettlinga eða peysu. Þegar við vorum búin að hekla fóru sumir að sauma krossaum en aðrir gerðu litla bolta eða kalla með skalla úr ull sem þeir þæfðu. Í nestistíma sagði Anna María Lind okkur oft draugasögu. Til dæmis eina um það þegar hún sá draug upp á fjalli. Öllum fannst skemmtilegt og fóru heim með bros á vör og vonuðu það að þeir mundu koma aftur næsta haust.
Anna Margrét Þorsteinsdóttir & Harpa Hilmisdóttir