Það hefur verið nóg að gera hjá 3. bekk í maí. Við fórum í vorferð á Grábók og gengum upp í miklu roki en fukum sem betur fer ekki niður. Síðan fórum við í sund á Varmalandi og enduðum á því að heimsækja gróðurhúsin að Laugalandi. Mjög skemmtileg ferð.
1.-3. bekkur héldu vorhátíð í Skallagrímsgarði fyrir fjölskyldur sínar. Þar var mikið sungið og leikið. 3. bekkur söng margföldunartöflunartöflur. Fyrst sungu þau 3x töfluna á íslensku og síðan 1x töfluna á dönsku.
Síðasta skóladag gengum við upp á Sólbakka og fórum í heimsókn í Eðalfisk. Þar fengum við mjög góðar móttökur og fengum að sjá allt framleiðsluferlið. Að sjálfsögðu fengum við að smakka rosalega góðan reyktan og grafinn lax. Í hádegismat fengum við grillaða hamborgara í boði foreldrafulltrúanna í bekknum.