Í dag þann 7.maí 2012 kom áströlsk fjölskylda í heimsókn í bekkinn okkar sem sagt 5.bekk. Darcy Mcgough,Susie mamman og Chris pabbinn, þau eiga heima í Melbourne. Mamma Sigurðar hún Guðbjörg kynntist mömmu Darcy, henni Susie þegar hún fór á alheimsskátamót í Ástralíu fyrir 25 árum en þá gistu hún heima hjá Susie áður en mótið byrjaði. Susie fann Guðbjörgu með því að spyrja skátana hér á Íslandi.
Susie vinnur sem flugumferðarstjóri í Ástralíu og
Chris er slökkviliðsmaður í Ástralíu.
Þetta var annað skiptið sem fjölskylda Darcy kemur til Íslands.Darcy,mamma hans og pabbi sögðu okkur margt sem var í Ástralíu,en ekki hérna á Íslandi eins og til dæmis Platypus sem er breiðnefur á íslensku.
Hann Darcy gaf okkur bekkjarfélögunum mjög krúttlega kóalabirni en samt ekki alvöru kóalabirni. Kóalabirnir lifa á gúmmítrjám í Ástralíu. Kóalabirnirnir sofa mest allan sólahringinn. Þeir eru vakandi seint á kvöldin þá sitja þeir upp í tré og tyggja laufblöð í rólegheitum.
Darcy sagði okkur að í Ástralíu færi vatnið í vaskinum og í klósettinu réttan klukkuhring en hér á Íslandi
fer hringiða vatnsins í öfugan klukkuhring. Hann Darcy sagði okkur líka að uppáhalds dýrið hans væri blettatígur. Hann sagði að þegar er nótt hjá okkur er dagur hjá þeim og eins þegar er sumar hjá honum er vetur hjá okkur. Þegar við erum í jólafríi er hann í sumarfríi.
Við krakkarnir voru dugleg og áhugasöm að spyrja um Ástralíu flestum okkar langa og vona að þau fari einhvern tíma til Ástralíu.:)
Arna Hrönn