Eftir hádegi í dag, föstudag, dag var nemendum eldri deildar boðið út í Óðal. Tilefnið var að Þór Tuliníus leikari og Landnámssetrið buðu þeim upp á styttri útgáfu af Blótgoðanum, sem Þór hefur sérstaklega útfært með tilliti til nemenda. Þór kom þessari sögu skemmtilega til skila á einni klukkustund og var ekki annað að sjá en allir nytu hverrar mínútu. Skólinn þakkar Þór og Landnámsetrinu kærlega fyrir góða og fræðandi skemmtun.