Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Grunnskólinn í Borgarnesi
   Gunnlaugsgötu 13
   310 Borgarnes
   skoli@grunnborg.is
  Skrifstofa: 437 1183
  437 1229
  Fax: 437 2283
  Tómstundaskóli: 437 2035
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Fyrri mánuður
febrúar 2012
Næsti mánuður

 Skólablómið

 

Íslensk stjórnvöld ákváðu síðastliðið vor að kanna hvort tilefni gæti verið  til að eitt tiltekið íslenskt blóm beri sæmdarheitið Þjóðarblóm Íslands og fólu þau Landvernd að annast framkvæmdina við þessa könnun. Meðal annars ákvað Landvernd að mælast til þess að grunnskólar landsins tækju þátt í leitinni að Þjóðarblóminu með því að  hver skóli veldi með lýðræðislegum hætti eitt blóm og sendi þá tillögu til Landverndar.

 

 Skólayfirvöld í Borgarnesi ákváðu að taka þátt í þessu verkefni. Síðastliðið vor og á haustdögum var síðan fjallaðum íslenskar plöntur og forsendur og fyrirkomulag  valsins kynnt fyrir nemendum og starfsfólki.

 

Miðvikudag,  8.september 2004,  greiddu nemendur og starfsfólk Grunnskólans í Borgarnesi svo atkvæði um það hvert skyldi verða Þjóðarblóm Íslands.

Alls tóku 348 þátt í valinu og voru niðurstöðurnar þær að Gleym-mér-ei  varð hlutskörpust, hlaut 70 atkvæði. Í öðru sæti  var Blágresi með 29 atkvæði og í því þriðja Geldingahnappur með 28 atkvæði.

Þess má geta að alls hlutu 30 íslenskar jurtir atkvæði. Katrín A Magnúsdóttir fagstjóri í náttúrufræðum sá um framkvæmd á þessu verkefni að hálfu skólans

 

Skólablóm Grunnskólans í Borgarnesi er því  Gleym-mér-ei  og mun skólinn senda tillögu um það blóm til Landverndar.

 

 

Hér er hægt að nálgast upplýsingar um blómið. Á vefsíðu Námsgagnastofnunar, hjá Landvernd og á vefsíðunni Flóra Íslands.

 

Blátt lítið blóm eitt er, lag (nótur og undirspil) og texti

Fréttir úr 5. bekk - 2.2.2012 1
Fréttir úr 5. bekk - 2.2.2012 0
Fréttir úr 5. bekk - 31.1.2012
Fréttir úr 5. bekk - 31.1.2012
Fréttir úr 1. bekk - 16.1.2012