Hótel Borgarnes rekur mötuneyti fyrir nemendur skólans í húsnæði sínu.
Hægt er að velja á milli þess að að vera í mötuneytinu alla virka daga vikunnar eða taka tvo daga vikunnar, þriðjudaga og miðvikudaga .
Nemendur sækja um fyrir 20. hvers mánaðar og tekur umsóknin þá gildi næsta mánuð þar á eftir. Uppsögn eða breytingar á skráningu þurfa að berast skólaritara fyrir 20. hvers mánaðar og tekur uppsögnin/breytingin gildi næstu mánaðamót á eftir.
Verð máltíðar er kr. 356 kr.
Matseðlar koma út fyrir hver mánaðarmót og er þá hér að finna.