Þessi síða er helguð Uppbyggingarstefnunni eða "Restitution" eins og hún heitir á ensku. Verða hér settir inn tenglar sem vísa á heimasíður um efnið.
Skólinn er byrjaður að vinna í því að innleiða aðferða - og hugmyndafræði þessarar stefnu sem upprunnin er í USA en höfundur hennar er Diane Gossen sem nú býr og starfar í Kanada. Frumkvöðull þessarar aðferðafræði á Íslandi er Magni Hjálmarsson sérkennari á Álftanesi en hann kynntist þessari stefnu fyrir um 7 árum.
Uppbyggingarstefnan miðar að því að kenna börnum og unglingum sjálfstjórn og sjálfsaga, að taka ábyrgð á eigin orðum og gerðum og læra af mistökum í samskiptum.
Gagnlegar heimasíður um efnið:
www.realrestitution.com (heimasíða Diane Gossen)
www.alftanesskoli.is (heimasíða Álftanesskóla)
http://uppbygging.alftanesskoli.is/ (Sunnuhvoll ehf - af vef Álftanesskóla)