Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Grunnskólinn í Borgarnesi
   Gunnlaugsgötu 13
   310 Borgarnes
   skoli@grunnborg.is
  Skrifstofa: 437 1183
  437 1229
  Fax: 437 2283
  Tómstundaskóli: 437 2035
Atburðadagatal
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
Fyrri mánuður
júlí 2010
Næsti mánuður
30. júlí 2010 11:38

Opnun skrifstofu

Skrifstofa skólans opnar að nýju eftir sumarleyfi miðvikudaginn 4. ágúst. Þeir sem þurfa að skrá nemendur í skólann eru beðnir um að gera það hið allra fyrsta og eins ef einhverjir eru að flytja í burtu að tilkynna það einnig. Skólasetning fer síðan fram mánudaginn 23. ágúst í íþróttamiðstöðinni og hefst kl.13.

meira...
7. júní 2010 10:10

Afhending "Grænfánans"

 

„Mörg lítil verk
sem margt lítið fólk vinnur
á mörgum litlum stöðum,
geta breytt heiminum“

                                                  (Kínverskt máltæki)

 

Skólaslit Grunnskólans í Borgarnesi voru fimmtudaginn 3. júní. Nemendur og starfsfólk skólans fóru í skrúðgöngu frá skólanum í Skallagrímsgarð þar sem afhending Grænfánans fór fram. Þetta er í þriðja sinn sem skólinn öðlast rétt til að flagga Grænfánanum og af því tilefni var ákveðið að allir mættu í einhverju grænu auk þess sem flestir höfðu búið til barmmerki þar sem minnt var á áherslur skólans í umhverfismálum. Óhætt er að segja að hugmyndaflugið hafi ráðið ríkjum á slagorðunum sem nemendur skrifuðu á barmmerkin sín eða gáfu þeim íbúum sem samfögnuðu okkur en sameiginlegt markmið okkar allra er að eiga fagran bæ við hreinan sæ.

 

Sumarkveðja,

Umhverfisnefnd.

meira...
3. júní 2010 08:43

Skólaslit

Skólaslit eru í dag, fimmtudag og hefjast kl. 10. Þá er safnast saman við skólann og gengið fylktu liði í Skallagrímsgarð. Þar fer fram afhending Grænfánans í þriðja sinn og síðan er farið í leiki og grill. Þessari dagskrá lýkur á því að allir safnast saman á fótboltavellinum og þar eru afhentir vitnisburðir. Skólaakstur er úr Bjargslandi kl. 9:40 og aftur til baka að skólaslitum loknum.

meira...
2. júní 2010 11:38

Hlutverkaleikur

Þriðjudaginn 25.maí fór 5.bekkur ásamt kennurum sínum þeim Elísu, Möggu, Helgu Þorsteins og Kristjáni skólastjóra í Skallagrímsgarð. Þar hófst mikill hlutverkaleikur, þar sem nemendur og kennarar settu sig í spor víkinga – landnámsmanna og landvætta. Þar komu fram Risinn Ráðandi, VilfríðurVölva, Assa Arnar hin flugfæra og Arnhildur arnarverndari, höfðingi og kona Járngríms járnsmiðs. Nemendur lifðu sig mjög inn í hlutverkin og leystu þrautir af miklum móð. Allir skemmtu sér konunglega í frábæru veðri.

meira...
1. júní 2010 01:55

Ofurbekkjaleikarnir

Ofurbekkjaleikarnir – 9. BHG sigurvegari

Undanfarin ár höfum við haldið íþróttaleika þar sem keppt hefur verið í óhefðbundnum íþróttagreinum. Í ár var ákveðið að Leikarnir færu fram á síðasta kennsludegi skólaársins. Í aðdraganda leikanna var efnt til keppni um nafn á þá og dómnefnd sem skipuð var óháðum kennurum (ekki umsjónarkennurum) valdi síðan úr fjölda tillagna. Að mati dómnefndarinnar kom besta tillagan úr 7. HH og heita leikarnir ,,Ofurbekkjaleikarnir.“ Bikar með þeirri áletrun verður nú farandbikar í eldri deildinni og árlega keppt um hann á síðasta degi skólaársins.  

Nemendur 7. – 9. bekkjar mættu í gærmorgun til umsjónarkennara sinna og bjuggu sig í einkennisbúninga og héldu síðan að íþróttahúsinu. Það voru íþróttakennararnir sem stjórnuðu leikunum og var keppt  m.a. í eggjagripi, boðhlaupi og gúmmískóakasti. Að því loknu var farið í Skallagrímsgarð,  þar sem nesti var borðað og sigurvegurum Ofurbekkjaleikanna,  9. BHG afhentur bikarinn. Í 2. sæti urðu nemendur 7. ES. Að lokum fóru nemendur í sund eða út í sumarið.  

meira...
28. maí 2010 09:51

Vorhátíð

Hin árlega vorhátíð 1. til 3. bekkja var haldinn í Skallagrímsgarði í gær. Nemendur tróðu upp á sviðinu en að því loknu var farið í leiki. Þrátt fyrir norðankalsann var öllum hlýtt í hjarta og skemmtu sér vel.

meira...
27. maí 2010 10:22

Aðalfundur foreldrafélags Grunnskólans í Borgarnesi

Aðalfundur Foreldrafélags Grunnskólans í Borgarnesi verður haldinn kl. 20:30 mánudaginn 31. maí 2010. Fundurinn verður haldinn í náttúrufræðistofunni í Grunnskólanum

 

Dagskrá:

  • Skýrsla formanns um starfsemi félagsins á liðnu ári
  • Kosning tveggja varamanna í stjórn félagsins
  • Tillaga að nýjum lögum fyrir félagið
  • Kosning tveggja fulltrúa í skólaráð
  • Önnur mál

 

Stjórnin leitar eftir framboðum í skólaráð og tveggja varamanna í stjórn foreldrafélagsins.

 

Skólaráð er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans. Skólaráð fjallar um skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun, rekstraráætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið. Skólaráð skal fá til umsagnar áætlanir um fyrirhugaðar meiri háttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla áður en endanleg ákvörðun um þær er tekin. Skólaráð fylgist almennt með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda.

 

Tillaga að nýjum lögum félagsins má sjá hér.

 

Þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram til setu í skólaráð eða sem varmenn í stjórn foreldrafélagsins hafið samband við Stefán í síma 695-9930 eða stebbi@mi.is

 

Með kveðju

 

Stjórn foreldrafélags

meira...
25. maí 2010 03:56

Tómstundaskólinn - Sumarsmiðjur

Líkt og undanfarin ár verða nú í júní námskeið á vegum Tómstundaskólans. Þau eru ætluð nemendum í 1. til 4. bekk og standa frá 1. til 16. júní, frá kl. 7:50 til 16:00.

Boðið verður upp á dansnámskeið, útilífs-og leikjanámskeið, nammigrís (brjóstsykursgerð) og föndurnámskeið.

Allar nánari upplýsingar má finna með því að smella hér.

meira...